Kammerkórinn Huldur var stofnaður af Hreiðari Inga Þorsteinssyni haustið 2021 en Hreiðar hefur starfað sem framhaldsskólakennari í tónlist við Menntaskólann við Hamrahlíð frá árinu 2017. Markmið hans með stofnun Huldar var að virkja meðlimi til tónsköpunar í gegnum kórverk samtímans, svo úr yrði vinnusmiðja í tónsmíðum samhliða söngnum.
Á skammri ævi hefur kórinn haldið fjölda tónleika, að jafnaði ferna á ári, og frumflutt hátt í fimmtíu ný íslensk kórverk. Hann hefur einnig verið dýrmætur vettvangur fyrir ungt fólk til að spreyta sig á tónsmíðum, ljóðagerð, einsöng og kórstjórn. Huldur hefur komið fram á ýmsum hátíðum: Unglist, Hátíðni á Borðeyri, kammertónlistarhátíðinni Seiglu, Óperudögum, Sönghátíð í Hafnarborg, Myrkum músíkdögum og Ungkórahátíð Evrópu (EJCF) sem haldin er annað hvert ár í Basel. Kórinn hefur einnig unnið með Sinfóníuhljómsveit Íslands og stigið á kórpalla með Graduale Nobili, Ægisif, Kór Hallgrímskirkju, Dómkórnum og svo vitaskuld Kór Menntaskólans við Hamrahlíð. Fyrst og fremst er Huldur þó griðastaður fyrir meðlimi sína sem mæta tvisvar í viku á græna gólfið í Hamrahlíðinni og syngja sig sundur og saman.
--ENGLISH--
Huldur was founded on a bleak autumn's night in 2021 and its namesake is the *huldur* which dwells in springs, rivers, waterfalls and in the deep dark ocean. The huldur sews sunlight into dewdrops and waterfalls and bellows the ocean's waves with its langspil or something along those lines. The choir has held many concerts these past three years and premiered a whole smorgasbord of new Icelandic choir music. Huldur is working on an album in full length of (mostly) new Icelandic choir music. The album, whose title is Í fossgljúfri, will be released in May 2026.